Vetur koma og vetur fara
Tomten

Síðastliðin ár höfum við á Sjávarhóli, leikskólanum Urðarhóli undirbúið jólin með skandinavískum brag. Við urðum því mjög spennt þegar við uppgötvuðum "Tomten".

Bókin um Tomten er eftir Astrid Lindgren sem byggir söguna á kvæði eftir Viktor Ryberg. Harald Wiberg myndskreytir síðan með gullfallegum myndum. Þessi bók fjallar ekki um jólin en færði okkur samt jólafrið og jólastemmningu því hún fangar hugblæ jólanna með einfaldleika og ró og fallegum boðskap. Börnin tóku slíku ástfóstri við Tomten að litla lágstemmda stefið um Tomten hljómaði í hverju horni líkt og róandi vögguvísa og samverustundirnar urðu eftirminnilegar gleðistundir.

Söguþráðurinn í "Tomten" er ekki flókinn og felast töfrar bókarinnar einmitt í því að einhverju leyti.Tomten er einskonar búálfur sem á heima á einmanalegum bóndabæ. Þar gætir hann fólks og dýra. Sagan gerist á einni kaldri vetrarnóttu þar sem Tomten fer sína venjulegu leið milli húsanna og léttir dýrunum veturinn með því að tala við þau á litlu tomten tungumáli sem dýr og börn geta skilið. (Börnin geta þó ekki notið hans þar sem þau sofa og sjá aðeins fótsporin daginn eftir.) Tomten minnir dýrin á sumarið sem mun koma fyrr en varir því vetur koma og vetur fara...Bókin er á ensku en þar sem hún er svo einföld er einfalt að þýða hana. Tomten segir nánast það sama við öll dýrin og endar það með litlu stefi sem gengur í gegnum bókina.

Vetur koma og vetur fara.
Sumur koma og sumur fara.
Bráðum verður hér sól í haga. 

Stefið í bókinni er mjög gaman að láta börnin syngja og einnig bara Tomten. Laglínan þarf ekki að vera flókin heldur frekar róandi líkt og raul. Þegar við sungum nafnið Tomten notuðum við til að mynda bara þrjár nótur og kom það út eins og bjölluhljómur. Þessu tvennu er síðan gaman að syngja til skiptis eða eins og hentar bókinni. Einnig var gaman að syngja þessi tvö stef saman. Börnunum er þá skipt í tvo hópa annar syngur Tomten en hin syngur stefið. Gerir þetta bókina enn skemmtilegri þar sem börnin fá að taka þátt. Þetta var jólin 2009 (en upptakan hér fyrir neðan er síðan í janúar) og hentar hún vel fyrir jólin því þá kunna börnin einmitt svo vel að meta svona bækur. Á Sjávarhóli er Tomten komin til að vera og í þeirri fullvissu urðum við okkur úti um fleiri Tomten bækur sem eru:
Tomten and the Fox
The Christmas at the Tomten Farm
The Christmas Tomten
Christmas in the Stable