Á þessu wiki er notað textasniðið Markdown.

Hægt er að nota markdown-kóða til að sníða til textann og setja inn tengla o.fl. Markdown-kóðar samanstanda af venjulegum táknum, eins og t.d. hornklofum og stjörnutáknum, sem notuð eru í sérstökum tilgangi í texta síðunnar, og sem breyta útliti hennar eða virkni samkvæmt eftirfarandi reglum. Til dæmis er hægt að gera texta feitleitraðan með því að umlykja hann tveimur stjörnum: **svona**.

Þessu wiki-kerfi fylgir hjálparsíða sem sýnir helstu kóðana. Hér er stytt yfirlit:

  • Skáletrað: *skáletrað*
  • Feitletrað: **feitletrað**
  • Fyrirsagnir:
    ## Stór fyrirsögn,
    ### Venjuleg fyrirsögn,
    #### Minni fyrirsögn
  • Punktalistar: byrjið hverja línu á bandstriki (-) eða stjörnu (*) með bili á eftir. Línurnar í undirlista aðallistans eru inndregnar 4 bil og byrja jafnframt á bandstriki. Listanum lýkur með tómri línu.
  • Númeraðir listar: byrjið hverja línu á tölustaf og punkti (1., 2.) ásamt bili. Það skiptir ekki máli hvort tölurnar séu í réttri röð - listinn verður tölusettur sjálfkrafa. Listanum lýkur með tvöföldu línubili
  • Efnisgreinar eru aðgreindar með tómum línum. Línubil inni í efnisgrein skipta ekki máli. Til að gera línubil inni í efnisgrein sýnilegt þarf að nota kóðann <br> eða ljúka línunni með tveimur biltáknum.
  • Tenglar á síður á þessu wiki: [[Síðuheiti]].
  • Tenglar á vefsíður utan þessa wikis: [Athyglisverð síða](http://eitthvad.is/).